28/03/2024

Veldu Strandamann ársins 2010!

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hefur nú ákveðið að standa fyrir kosningu á Strandamanni ársins sjöunda árið í röð. Tilgangurinn með því er að vekja fólk til umhugsunar um allt það sem vel er gert í samfélaginu og þá sem standa sig með prýði. Hægt verður að senda inn tilnefningar fram að miðnætti á þrettándanum, fimmtudaginn 6. janúar. Þeir sem vilja tilnefna Strandamann ársins 2010 fylla út formið sem er að finna undir þessum tengli eða undir tengli efst hér vinstra megin. Þar tilgreina þeir sem þátt taka hver fær þeirra atkvæði og hvers vegna. Allir Strandamenn nær og fjær eru hvattir til að taka þátt, en í síðari umferð verður valið á milli þeirra þriggja sem flestar tilnefningar fá.

Strandamaður ársins hefur verið valinn sex sinnum á vefnum strandir.saudfjarsetur.is, en fyrsta árið var valið unnið í samvinnu við blaðið Fréttirnar til fólksins og árin 2008 og 2009 í samvinnu við Gagnveg, enda átti Kristín S. Einarsdóttir hugmyndina að þessum skemmilega leik. 

Þeir sem hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að vera valdir Strandamenn ársins af samferðamönnum sínum eru:

2004 – Sverrir Guðbrandsson eldri á Hólmavík
2005 – Guðbrandur Einarsson frá Broddanesi
2006 – Sandra Dögg Guðmundsdóttir á Drangsnesi
2007 – Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi 
2008 – Ingibjörg Sigvaldadóttir frá Svanshóli
2009 – Sigurður Atlason á Hólmavík