25/04/2024

Vel heppnuð Þrettándagleði á Hólmavík

Það var margt um manninn á Þrettándagleði í Galdragarðinum á Hólmavík í gær og eins sáust þar álfaprinsessur og tröll og jafnvel jólasveinn. Fróðleikur um þjóðtrú og þrettándann var fluttur og líka sungið og spilað og spjallað. Gleðskapur og gamanmál voru í hávegum höfð. Þeir sem ekki voru með skauta meðferðis dönsuðu á svellinu í staðinn og kakó og smákökur voru á boðstólum. Flugeldasýning björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hólmavík setti líka svip á gleðskapinn og jarðeldar og lofteldar lýstu upp himinn og jörð og sveipuðu Strandir ævintýraljóma.

0

Tröll og álfar

atburdir/2009/580-threttandinn17.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn5.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn4.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn16.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn14.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn13.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn11.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn8.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn10.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn6.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn7.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn2.jpg

atburdir/2009/580-threttandinn1.jpg

Þrettándinn á Hólmavík – ljósm. Jón  Jónsson