18/04/2024

Veisla að vestan

Kynningarfundir á verkefninu Veisla að Vestan sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur staðið fyrir undanfarna daga hafa gengið vel og hafa um 60 manns mætt á kynningarnar. Til stendur að hafa tvo kynningarfundi til viðbótar á næstunni, á Reykhólum og í Árneshreppi. Veisla að Vestan er þróunarverkefni í matartengdri ferðaþjónustu og er tilgangur þess fyrst og fremst að vekja athygli á vestfirskum matvælum sem mun leiða af sér aukinn sýnileika og aukna veltu þeirra fyrirtækja sem vinna með vestfirskt hráefni.
Allir geta tekið þátt í verkefninu en til að nota merkið og taka þátt í sameiginlegri markaðssetningu þarf viðkomandi fyrirtæki að vera með gilt starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða.

Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig til þátttöku og eru mjög spennandi verkefni framundan næstu misseri. Meðal verkefna sem eru framundan er markaðssetningarvinna í samvinnu við Markaðsstofu Vestfjarða en þátttakendum í Veisla að Vestan verða gerð góð skil á heimasíðu markaðsstofunnar.

Þá mun Veisla að Vestan taka þátt í kokkakeppni sem nefnist Íslenskt Eldhús 2009 en hún verður haldin á ferðasýningunni  sem fer fram daga 8.-10. maí í Laugardagshöll.  Markmið keppninnar er að kynna það besta sem hver landshluti hefur upp á að bjóða í mat og vekja athygli á mikilvægi þess að við lærum að meta hvað Ísland hefur upp á að bjóða sem matarkista. Þar munu landshlutarnir keppa sína á milli og að sjálfsögðu mun vera stuðst við það hráefni sem þátttakendur í Veisla að Vestan vinna með.

Þá hefur verið hannað merki fyrir Veisla að Vestan sem notað verður í allri markaðssetningu sem og til að merkja vestfirsk matvæli til að gera þau sýnilegri í verslunum og á veitingastöðum. Vestfirðingar mega því búast við því að innan skamms fari þeir að sjá sérmerktar vestfiskar matvörur í verslunum og á veitingahúsum hér á svæðinu.

Hafi fyrirtæki áhuga á að taka þátt er þeim bent á að hafa samband við Ásgerði Þorleifsdóttur verkefnisstjóra hjá Atvest í síma 4503053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is.