23/04/2024

Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar!


Dagana 31. ágúst til 1. september verður haldið foreldranámskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar í Grunnskólanum á Hólmavík. Þar verður m.a. fjallað um hvernig hægt er að koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika, hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og ákveðni, auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu, nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt, kenna börnum æskilega hegðun og takast á við venjuleg vandamál í uppeldi. Leiðbeinandi Ester Ingvarsdóttir, en hún er sálfræðimenntuð, starfsmaður á Þroska- og hegðunarstöð og hefur kennt þar á fjölmörgum uppeldisnámskeiðum.

Námskeiðið verður haldið í Grunnskólanum á Hólmavík og má nálgast upplýsingar um skráningu, verð og tímasetningar á vef skólans – www.strandabyggd.is/grunnskoli.