29/03/2024

Umferðaróhöpp og eldur í kyndiklefa

Í fréttatilkynningu um helstu verkefni lögreglunnar á Vestfjörðum í síðustu viku kemur fram að fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni. Meðal annars varð árekstur við gatnamót Skutulsfjarðarbrautar og Seljalandsvegar á Ísafirði. Þar skullu tvær bifreiðar saman, talsverðar skemmdir á ökutækjum og þær óökuhæfar. Ökumenn leituðu til læknis vegna eymsla. Minniháttar óhapp varð í Bolungarvík, þar bakkaði lyftari á bifreið við fiskmarkaðinn. Þá var tilkynnt um fjórhjólaslys á Reykhólum, þar hafði maður dottið af fjórhjóli og meiðst á öxl í fjórhjólaferð við Vaðalfjöll, en var kominn að Reykhólum þar sem sjúkrabíll tók hann og flutti á Heilsugæsluna í Búðardal til skoðunar. Þá ók bílstjóri út af á Gemlufallsheiðinni og var bifreiðin fjarlægð með krana.

Föstudaginn síðasta kom upp eldur í kyndiklefa sem stóð skammt frá sumarhúsi í Flatey á Breiðafirði.  Heimamönnum tókst að slökkva eldinn og bjarga því að hann læstist ekki í sumarhúsið. Kyndiklefinn brann til kaldra kola, eldsupptök eru ókunn og málið í rannsókn.

Umferðin var frekar róleg í umdæminu í vikunni, þó var einn stöðvaður fyrir of hraðan akstur. Þá var einn ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Nokkrir ökumenn voru áminntir vegna ljósabúnaðar.