16/04/2024

Tvær bílveltur á Vestfjörðum

Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum um verkefni í liðinni viku kemur fram að umferð gekk nokkuð vel fyrir sig. Þó voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og sá sem hraðast ók, var mældur á 120 km/klst, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu á sunnudag. Um var að ræða tvær bílveltur í Arnarfirði, önnur á Bíldudalsvegi í Dufansdal, þar hafnaði bifreið langt út fyrir veg. Hin á Ketildalavegi í Hringsdal, þar hafnaði bifreið á hvolfi út fyrir veg. Um minniháttar meiðsl var að ræða í báðum þessum tilfellum.

Lögregla vill koma því á framfæri við foreldra og forráðamenn barna og unglinga að virða útivistartíma. Þá vill lögregla ennfremur benda ökumönnum og umráðamönnum bifreiða á að kanna með ljósabúnað bifreiða sinna, en nokkuð hefur borið á því að ljósabúnaði sé áfátt. Þá er ekki úr vegi að geta þess að á þessum tíma árs má vænta krappra lægða sem ganga upp að landinu og geta valdið hvössum vindi. Því er fólk beðið um að gæta að lausum munum við hús sín og híbýli.