19/04/2024

Tilkynning frá kjörstjórn Strandabyggðar

 Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Strandabyggð  29. maí 2010.
Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður nú í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 10:00 en kjörstaður verður opinn frá kl. 11:00 til 18:00 (sbr. þó 93. gr. laga um kosningar til alþingis nr. 80/1987). Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000: „Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér, svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil“.