25/04/2024

Þriggja kvölda félagsvist í Sævangi


Félagsvist verður haldin í Sævangi á fimmtudagskvöldið kemur, en hún er hluti af þriggja kvölda keppni sem fer fram næstu vikur á vegum Sauðfjárseturs á Ströndum. Fyrsta kvöldið er fimmtudaginn 22. nóvember, annað kvöldið verður fimmtudaginn 6. desember og þriðja kvöldið verður haldið fimmtudaginn 13. desember. Spilamennskan hefst kl. 20:00 öll kvöldin og er aðgangseyrir kr. 800.- og eru þá veitingar innifaldar, djús, kaffi og kökur. Vinningar verða veittir fyrir hvert kvöld og einnig eru veglegir vinningar fyrir samanlagðan árangur öll þrjú kvöldin. Allir velkomnir, hvort heldur sem er eitt kvöld eða fleiri.