19/04/2024

Þriðja flokks ástand raforkumála

Höfuðstöðvar Orkubúsins á HólmavíkÁ fundi stjórnar Orkubús Vestfjarða ohf. á Patreksfirði þann 3. september var eftirfarandi ályktun samþykkt: "Stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. fagnar yfirlýsingum iðnaðarráðherra um að gera úrbætur í orkumálum Vestfjarða að algjöru forgagnsverkefni í ráðuneyti sínu og breyta þannig þriðja flokks ástandi vestfirskra orkumála og lyfta í sama gæðaflokk og ríkir annars staðar á landinu. Stjórn Orkubús Vestfjarða mun hér eftir sem hingað til veita ráðherra fullan stuðning við að bæta ástand raforkumála á Vestfjörðum. Stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. bendir á að flutningskerfi raforku er ekki á forræði fyrirtækisins."