24/04/2024

Teista friðuð fyrir skotveiðum

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur með reglugerð friðað teistu fyrir skotveiðum. Ákvörðunin um friðun sem tekur gildi 1. september er tekin á grundvelli umsagna frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Umhverfisstofnunar. Teista er grunnsævisfugl sem telst til svartfugla og verpir í klettagjótum, urðum og sprungum. Vöktun bendir sterklega til talsverðrar fækkunar teistu í allmörg síðustu ár.

Í maí barst ráðherra áskorun frá Fuglaverndarfélagi Íslands, Skotvís og Vistfræðifélags Íslands um að friða teistu fyrir skotveiðum vegna minnkandi stofnstærðar hennar hérlendis.