20/04/2024

Sumarhús á Hólmavík

Aðsend grein: Jón Jónsson
Einu staðirnir sem bjóða upp á gistingu í sumarhúsum (leigja húsin út nótt og nótt) á Ströndum eru Hótel Djúpavík þar sem menn geta gist í húsinu Álfasteini í Djúpavík og Gistiheimilið Borgabraut á Hólmavík sem selur gistingu í húsinu Brekkuseli í nágrenni Hólmavíkur. Ferðaþjónusta bænda í Bæ á Selströnd hefur einnig selt gistingu í sumarhúsum síðustu ár, en mér er ekki kunnugt um hvernig verður með það í framtíðinni. Eftirspurnin eftir gistingu í slíkum húsum á Ströndum er klárlega meiri en framboðið yfir hásumarið, en því miður er hásumarið ekki langur tími.

Síðustu ár hef ég öðru hverju skoðað hvort ráðlegt sé að bæta við reksturinn og gistinguna á Kirkjubóli með því að reisa sumarhús eða smáhýsi á jörðinni og selja gistingu í þeim. Niðurstaðan af þessum útreikningum mínum hefur verið sú að þetta borgi sig ekki þar sem fjármagna þyrfti uppbyggingu húsanna með lánum. Tíminn sem húsin yrðu í útleigu á ári hverju sé of stuttur, of dýrt sé að taka inn rafmagn, leggja að þeim vatn og frárennsli, koma upp heita pottinum sem er algjört möst í sumarhúsum úti í sveit en ekki endilega á gistihúsum o.s.frv.

Á hinn bóginn tel ég mjög líklegt að grundvöllur væri fyrir slíkum rekstri innanbæjar á Hólmavík (en sú staðsetning held ég að sé grundvallaratriði fyrir reksturinn), í göngufæri við alla aðra þjónustu. Sérstaklega væri snjallt ef einhver ferðaþjónn sem þegar er starfandi gæti séð um reksturinn og þjónustuna og hægt væri að sinna húsum og gestum í tengslum við annan rekstur. Þarna sé ég fyrir mér lágmark 5-6 sumarhús sem eru leigð út nótt og nótt í senn eða lengur eftir því sem viðskiptavinir óska. Á Hólmavík kæmi nálægð við sundlaugina í staðinn fyrir heita pottinn, miklu ódýrara er að taka inn rafmagn í þéttbýlinu en dreifbýlinu og margt fleira kemur til. Reksturinn yrði óhagkvæmari ef umfangið er minna.

Best væri auðvitað að einhver áhugasamur tæki af skarið og startaði slíku fyrirtæki á eigin forsendum og sæi um uppbyggingu og rekstur á slíkri gistingu í sumarhúsum. Mér þykist samt vita að það væri líka hægt að gera þetta í félagi, með því að margir aðilar stofni saman einkahlutafélag um reksturinn. Ég er viss um að ýmsir væru tilbúnir til að taka þátt í og eiga hluta í fyrirtæki sem sneri að því að koma slíkum húsum upp og koma þeim í rekstur. Fjárfestar, aðrir ferðaþjónar og iðnaðarmenn gætu til dæmis tekið þátt í fyrirtækinu og lagt ýmist fram fjármagn eða vinnu við ólíkustu þætti, allt frá smíðavinnu og flutningi til bókhaldsvinnu og markaðssetningar. Þetta yrði þá allt saman metið til fjár og eignarhlutar í fyrirtækinu.

Meira að segja mætti hugsa sér að sveitarfélagið gæti lagt fram sem framlag lóðir og lagnir og önnur hvor fjármálastofnunin á staðnum þá upphæð sem upp á vantar til að endar náist saman og annars þyrfti að taka að láni. Í báðum tilfellum yrði það metið sem hlutafé og stefnt að því að hlutafélagið sjálft eða aðrir hluthafar kaupi þann hlut af sveitarfélaginu og fjármálastofnuninni til baka á einhverjum árum. Hægt væri að semja við einhvern ferðaþjóninn um umsjón með rekstrinum gegn föstu gjaldi eða hluta af veltu. Eins þyrfti ákveðið hlutfall af innkomu að fara í viðhaldssjóð, áður en arður yrði greiddur til hluthafa.

Nokkrir staðir innanbæjar á Hólmavík koma til greina og margvíslegt fyrirkomulag bæði varðandi uppbyggingu og rekstri. Þetta yrði til að efla ferðaþjónustuna, það er engin spurning. Þetta gæti líka hugsanlega létt aðeins á eftirspurn brottfluttra eftir íbúðarhúsum á Hólmavík til að breyta í sumarhús, þó auðvitað verði líka á hverjum tíma að vera tilbúnar sumarhúsalóðir fyrir þá sem vilja eiga bústað inni í þorpinu.

Langar ekki einhverja að leggja í þetta pening eða vinnu? Það væri hægt að opna í vor.

Jón Jónsson, Kirkjubóli.