23/04/2024

Styrkir til vöruþróunar á Vestfjörðum

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur auglýst eftir styrkumsóknum í verkefnið Vöruþróun á Vestfjörðum. Þar er um að ræða stuðningsverkefni sem ætlað er starfandi fyrirtækjum á Vestfjörðum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Markmið verkefnisins er að treysta afkomu starfandi fyrirtækja með því að efla nýsköpun og að veita aðstoð og fjárhagslegan stuðning allt að 3 milljónum til einstakra verkefna við að þróa þjónustu eða vöru og koma henni á markað.

Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2009 og má nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvarinnar.