20/04/2024

Styrkir til 52 menningarverkefna

Magnús Ólafs Hansson og Gunnar HallssonStyrkir Menningarráðs Vestfjarða við síðari úthlutun á árinu 2008 voru afhentir við hátíðlega athöfn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði á föstudaginn var. Alls voru veittir 52 styrkir að upphæð samtals 17,4 milljónir og voru einstakir verkefnastyrkir á bilinu frá 50 þúsund til 1 milljón. Samkvæmt fréttatilkynningu Menningarráðs fóru styrkirnir til fjölbreyttra verkefna sem sýna glöggt þann kraft og frumkvæði sem býr í vestfirsku menningarlífi. Margvísleg útgáfuverkefni voru þó áberandi við úthlutun að þessu sinni, enda var lögð sérstök áhersla á að styrkja slík verkefni nú. Átti það bæði við um útgáfu bóka og tónlistar. Næst verður auglýst eftir styrkumsóknum snemma á nýju ári, en samtals hefur Menningarráð Vestfjarða nú úthlutað 55 milljónum til 151 verkefnis við þrjár úthlutanir.

Listi um alla styrkina við síðari úthlutun ársins 2008 er svohljóðandi:

Strandagaldur ses – 1.200.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Heimildamynd um galdrafárið í Trékyllisvík – 1.000.000.-
     Barnarímur Ásu Ketilsdóttur – 200.000.-
Alþýðusamband Vestfjarða: Saga verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum 1906-2006 – 1.000.000.-
Sögunefnd byggðasögu Strandamanna: Strandabókin byggðasaga – 1.000.000.-
Útgáfufélag Búnaðarsambands Vestfjarða: Vestfjarðarit IV (Vestur-Barðastrandarsýsla) – 700.000.-
Aldrei fór ég suður, félag: Aldrei fór ég suður – 700.000.-
Arnarsetur Íslands: Arnarsetur – hönnun og undirbúningur sýningar – 700.000.-
Kómedíuleikhúsið og Act Alone leiklistarhátíð – 700.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Auðun og ísbjörninn – leiksýning – 400.000.-
     Íslenskir einleikir – Söguleg ferðasýning – 300.000.-

Íþróttafélagið Höfrungur Þingeyri: Söngleikurinn Dragedukken – 500.000.-
Byggðasafn Vestfjarða: Saltfiskuppskriftir og hljómdiskur – saga og menning – 500.000.-
Menningarmiðstöðin Edinborg: Listviðburðir Menningarmiðstöðvarinnar júlí-desember 2008 – 500.000.-
Snjáfjallasetur – 500.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Útgáfa á kveðskap frá Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum úr segulbandasafni Árnastofnunar – 200.000.-
     Sýning um skólahald í heimangönguskólanum að Lyngholti á Snæfjallaströnd – 300.000.-
Sauðfjársetur á Ströndum – 500.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Líf og starf ráðunautar – sérsýning um Brynjólf Sæmundsson – 300.000.-
     Útgáfa fræðsluhefta um sauðfjárbúskap og bændamenningu – 200.000.-

Sjóræningjahúsið: Sögur úr grjóti – 400.000.-
Vestfirðir á miðöldum: Vatnsfjarðarsaga – 400.000.-
Leikfélagið Baldur Bíldudal: Bíldudals bacalao – sumarleikhús – 400.000.-
Óstofnað félag um Sögusetur og söguslóð Spánverjavíganna 1615: Spánverjavígin 1615. Sögusetur – söguslóð – 400.000.-
Kvenfélagið Ósk: Safn sem hýsir sögu kvennamenningar, lista og handverks – 400.000.-
Brúðuleikhúsið Dúkkukerran: Leikbrúðusýningin Þjóðbrók – 400.000.-
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Skrímslasögur lifna við – 400.000.-
Tónlistarfélag Ísafjarðar: Afmælistónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar 2008-9 – 400.000.-
EagleFjord ehf. og Gallerie Dynjandi – 400.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Bíldudalsstein – 200.000.-
     Vestfirðir að vetri – 200.000.-
 
Bjarni Ómar Haraldsson – 350.000.- (samtals, 2 verkefni).
     Fyrirheit, hljómplötuútgáfa – 250.000.-
     Útgáfutónleikar og tónleikaröð – 100.000.-
Vesturbyggð: Merkingar eyðibýla í Vesturbyggð – 300.000.-
Þjóðfræðistofa: Leitin að Gísla – annar áfangi heimildamyndar – 300.000.-
Passport Kvikmyndir: Norð Vestur – 300.000.-
Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar: Námskeið – leiklist og söngleikur – 300.000.-
Sögufélag Barðastrandasýslu: Endurútgáfa Árbókar Barðastrandasýslu – 300.000.-
Félagið Hús og fólk: Á mölinni: Textar og teikningar – 300.000.-

Litli leikklúbburinn: Úti er alltaf að snjóa – Leik- og söngdagskrá – 250.000.-
Þórarinn Hannesson: Þorpið – ljóðaleikur – 250.000.-
Birgir Örn Sigurjónsson: BIX – hljómdiskur – 250.000.-
Lilja Sigurðardóttir: Hver er ég? – Útgáfa á geisladiski með frumsömdum lögum og textum – 250.000.-
Þröstur Jóhannesson: Vorið góða – 250.000.-
Kvennakórinn Norðurljós: Útgáfa hljómdisks með Kvennakórnum Norðurljósum – 250.000.-
Kristján G. Jóhannsson: Sýning um skipasmíðar Marsellíusar Bernharðssonar – 250.000.-
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: Útgáfa á úrvali ljóða skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur frá Laugabóli – 250.000.-
Framför – Styrktarsjóður skíðamanna á Ísafirði: Ísfirskir Ólympíufarar – 250.000.-
Þjóðbúningafélag Vestfjarða: Dagatal Þjóðbúningafélags Vestfjarða – 200.000.-

Ómar Smári Kristinsson: Teikningar af vestfirskum byggðum – útgáfa handgerðra dagatala – 100.000.-
Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna: Kuml í Berufirði – rafræn miðlun – 100.000.-
Thorp ehf: Hnyðjur – ljóðabók Þorgeirs Sigurðssonar frá Stóra Fjarðarhorni – 100.000.-
Lisbet Harðardóttir: Búrið – listagallerí – 100.000.-
Óbeisluð fegurð: Óbeilsuð fegurð, útgáfa heimildarmyndar á DVD – 100.000.-
Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða: Gvendarlaug hins góða – Byggingarsaga sundlauga í Bjarnarfirði og saga Sundfélagsins Grettis – 100.000.-
Skiptá, áhugamannafélag um menningu og listir: Tónleikahald á Vestfjörðum – 50.000.-
Laufey Eyþórsdóttir: Myndlistarsýningar í Ísafjarðarbæ – 50.000.-

 Styrkir

frettamyndir/2008/580-styrkir3.jpg

Fjölmenni var við afhendingu styrkjanna – ljósm. Arnór Jónsson