19/04/2024

Strandsvæði – sóknarfæri fyrir vestfirsk samfélög

Fyrsti fundur í
fundarröð um nýtingaráætlun fyrir strandsvæði við Vestfirði verður haldinn á
veitingarstaðnum Malarkaffi á Drangsnesi, fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi, kl
20.00. Val fundarstaðar er ekki tilviljun, hér er hrint af stað verkefni, hinu
fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem sjónum er beint að nýtingu
strandsvæðisins og því er viðeigandi að sá fundur sé haldinn í fjörurkambi við
mynni Steingrímsfjarðar.


 
Fundir og svæðaafmörkun þeirra er annars sem
hér segir;

–     Strandasýsla,  19. nóvember kl 20.00. veitingarstaðurinn
Malarkaffi, Drangsnesi.
–     Reykhólahreppur, 20. nóvember kl 10.00.
Íþróttahúsið Reykhólum, Reykhólum
–     Vestur Barðastrandasýsla , 20. 
nóvember kl 17.00. Skor þróunarsetur, Patreksfirði
–     Ísafjarðarsýsla, 
25. nóvember kl 20.00.  Þróunarsetur Vestfjarða, Árnagötu, Ísafirði

 
Strandlengja Vestfjarða, að meðtöldum eyjum og hólmum, er um 1/3
hluti af strandlengju Íslands. Aukinn áhugi er fyrir nýtingu strandsvæða við
Ísland og veruleg tækifæri er þar að finna til framtíðar litið. Stjórnsýsla
strandsvæðis Íslands er með brotakenndum hætti, áhrif samfélaganna á þróun mála
eru lítil og aukin hætta er á hagsmunaárekstrum eftir því sem fram í sækir.
Vestfirsk sveitarfélög hafa því ákveðið, í samvinnu við Teiknistofuna Eik og
Háskólasetur Vestfjarða, að hrinda af stað verkefni sem hefur það meginmarkmið
að gera samþætta nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða og samræma stjórnun
og nýtingu þessara svæða í samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila. Verkefnið verður
hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, þar sem greina á nýtingu strandsvæðis
innan heils landshluta.