29/03/2024

Strandagangan í Selárdal á laugardag

Laugardaginn 13. mars verður Strandagangan haldin í Selárdal við Steingrímsfjörð. Þetta er 16. árið í röð sem gangan er haldin, en fyrsta Strandagangan
var haldin snjóaveturinn 1995. Það er ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna í Selárdal, annaðhvort til að vera með í göngunni eða fylgjast með bestu skíðagöngumönnum
landsins sem sumir eru nýkomnir úr Vasagöngunni.  Brautin sést öll
frá veginum fram að Geirmundarstöðum og er ágætt fyrir áhorfendur að hafa kíki
meðferðis.


 

Skráning fer fram á staðnum milli 11:30 og 12:20 en þá eru yngstu aldursflokkar ræstir af stað.
 
Að göngu lokinni er kaffihlaðborð og
verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík. Selt er inn á kaffihlaðborðið
fyrir aðra en keppendur og starfsmenn til styrktar starfsemi Skíðafélagsins.