19/04/2024

Strandagangan haldin um næstu helgi

Strandagangan verður haldin í 17. sinn í Selárdal við Hólmavík næsta laugardag, þann 12. mars. Aðstæður á keppnisstað eru góðar. Keppt verður í sex vegalengdum í karla- og kvennaflokki. Þrír fyrstu í hverjum flokki fá bikara og aðrir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna. Sá sem er fyrstur í mark í 20 km. göngunni hlýtur til varðveislu næsta árið veglegan farandbikar sem gefinn var af Heilbrigðisstofnun Hólmvíkur til minningar um Sigfús Ólafsson heimilislækni.

Í göngunni er einnig keppt í sveitakeppni sem fer þannig fram að þrír einstaklingar í sömu vegalengd mynda lið og gildir samanlagður tími þeirra í sveitakeppninni. Þrjár efstu sveitirnar í hverri vegalengd fá verðlaunapeninga fyrir sæti.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Strandagöngunnar.