24/04/2024

Stórgóðir tónleikar hjá Svavari Knút

Svavar með úkúleleTrúbadorinn Svavar Knútur sem einnig syngur með hljómsveitinni Hraun, hélt stórgóða tónleika á Galdraloftinu á Galdrasafninu á Hólmavík á dögunum. Flutti hann lög af útkomnum plötum og einnig af væntanlegri plötu þar sem hamingjan verður í fyrirrúmi. Svavar Knútur kom svo við í skólanum á Hólmavík og skemmti grunnskólanemendum, áður en hann hélt áfram í Skagafjörðinn þar sem næstu tónleikar voru bókaðir í Auðunnarstofu á Hólum.

bottom

atburdir/2009/580-svavar-knutur2.jpg

Svavar Knútur á Galdraloftinu – ljósm. Jón Jónsson