25/04/2024

Stefnumótun í ferðaþjónustu á Vestfjörðum

300-bryggjuhatid20Eftir mikla fjölgun ferðamanna á Vestfjörðum síðastliðið ár stendur vestfirsk ferðaþjónusta nú á tímamótun. Því er nauðsynlegt fyrir ferðaþjóna að staldra við, meta árangur síðustu ára og setja sér traust markmið fyrir framtíðina. Hafa Ferðamálasamtök Vestfjarða sem eru grasrótarhreyfing í ferðaþjónustu um alla Vestfirði því ákveðið að ráðast í gerð heildstæðrar stefnumótunar fyrir greinina til næstu fimm ára, með það að markmiði að treysta innviði og hlúa að ferðaþjónustu í fjórðungnum. Með öflugri ferðaþjónustu með skýra framtíðarsýn er ætlunin að efla efnahag og samfélag á Vestfjörðum til framtíðar.

Ferðaþjónustu á Íslandi og Vestfjörðum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og er mikilvægi hennar að aukast hratt í vestfirsku samfélagi. Ætla má að vægi ferðaþjónustunnar í atvinnulífi á Vestfjörðum sé í kringum 7,5% og að vöxturinn síðastliðið ár sé hátt í 30%.

Á næstu vikum munu Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir vinnufundum með ferðaþjónum og hagsmunaaðilum um alla Vestfirði. Markmiðið með fundunum er að virkja hagsmunaaðila í ferðaþjónustu til að leggja sitt af mörkum í að meta stöðu ferðaþjónustu á Vestfjörðum og taka þátt í að móta framtíðarsýn hennar. Fundirnir eru öllum opnir og eru kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

Fyrir stefnumótuninni standa Ferðamálasamtök Vestfjarða, en njóta stuðnings Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Markaðsstofu Vestfjarða og Menningarráðs Vestfjarða við framkvæmd vinnufundanna og úrvinnslu þeirra. Stefnumótunarvinnan er fjármögnuð af Ferðamálasamtökunum og samstarfsaðilum ásamt Vaxtarsamningi Vestfjarða.

Vinnufundirnir samanstanda af stuttum kynningum um stöðu ferðaþjónustunar á Íslandi og Vestfjörðum, en meginefni fundanna eru starf vinnuhópa þar sem þátttakendum og fundargestum gefst kostur á að hafa áhrif.  Unnið verður í litlum hópum að afmörkuðum málefnum ferðaþjónustunnar. Boðið er upp á hressingu á meðan fundinum
stendur.

Fundarherferðin hefst í Bjarkalundi í Reykhólahreppi þann 7. nóvember næstkomandi og er gert ráð fyrir þátttöku úr Reykhólahreppi og af Ströndum á þeim fundi. Dagskrá fundanna er annars sem hér segir:

7. nóv. Bjarkalundur kl. 13.00-16.00
9. nóv. Sjóræningjahúsið Patreksfirði 18.00-21.00
11. nóv. Þróunarsetrið Ísafirði 18.00-21.00

Ferðamálasamtökin leggja áherslu á víðtæka samvinnu og samstarf milli stoðgreina ferðaþjónustunnar, ferðaþjónustufyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila í þeirri vinnu sem framundan er. Með samstilltu átaki og skýrri framtíðarsýn getur ferðaþjónusta á Vestfjörðum haldið áfram að vaxa og dafna, öllum Vestfirðingum til heilla.

Nánari upplýsingar um stefnumótunarvinnuna og vinnufundina er að fá hjá Ásgerði í síma 450 3053 og Jóni Páli í síma 450 4041.