19/04/2024

Spegilsléttur sjór og blankalogn

spegill3

Ský á himni endurspeglast í hafinu sem er rennislétt í blankalogninu sem verið hefur á Hólmavík í morgun. Það er varla nokkur leið að tolla inni á skrifstofu við excel skjöl og skýrslugerð þegar veðurlagið er með þessum hætti í ágústmánuði. Á dögum sem þessum ættu allir að njóta þess að vera til, upplifa fegurðina allt um kring. Það er ekki sjálfgefið að fólk muni eftir því að vera vakandi, taka eftir undrum alheimsins og og gleyma því ekki að hafa gaman af sínu eigin lífshlaupi.

spegill - Copy spegill2 spegill4

Spegilsléttur sjór á Hólmavík – ljósm. Jón Jónsson