25/04/2024

Spaðaásarnir dregnir fram í dagsljósið

Glaðbeittir spilamenn hjá Bridgefélagi Hólmavíkur ætla  hrista spaðaásana fram úr erminni og spila hver með annan vikulega. Byrjað verður að spila sunnudaginn 12. október kl. 20:00 og verður svo í allan vetur. Bridgefélagið hittist í Björgunarsveitarhúsinu á Hólmavík  og eru allir velkomnir sem áhuga hafa á að spila með. Um það bil 10-14 manns hafa látið slag standa á þeim spilakvöldum sem haldin,voru í fyrra en nýliðar mættu gjarnan láta sjá sig. Guðbrandur Björnsson er formaður félagsins.