25/04/2024

Skráningu á dansnámskeið á Hólmavík að ljúka

Vikan 14.-18. mars verður sannkölluð dansvika á Ströndum, en þá heldur Jón Pétur Úlfljótsson frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru dansnámskeið fyrir börn og fullorðna á Hólmavík. Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á námskeið fyrir fullorðna sem haldið verður kl. 20:00-21:30 frá mánudegi til fimmtudags. Allir eldri en 16 ára geta tekið þátt í námskeiðinu, en hver og einn fær viðfangsefni við sitt hæfi í dansinum. Námskeiðið í heild kostar kr. 4.000.-, en einnig er hægt að mæta á einstök kvöld sem kosta þá kr. 1.000.-  Skráningu lýkur kl. 16:00 föstudaginn 11. mars, en hún fer fram hjá Arnari S. Jónssyni tómstundafulltrúa í s. 661-2009 og tomstundafulltrui@strandabyggd.is.