28/03/2024

Skipað í áfallateymi í Strandabyggð

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur komið á laggirnar og skipað í áfallateymi í sveitarfélaginu Strandabyggð. Áfallateyminu er falið að mynda sér verklagsreglur og viðbragðsáætlun um hvernig bregðast skuli við þegar meiriháttar áföll verða í samfélaginu. Varamenn munu taka þátt í bæði undirbúningi og áætlanagerð. Fyrirhugað er að tengsl verði milli Áfallateymisins og  Almannavarnarnefndar Héraðsnefndar Strandasýslu, auk margra annarra stofnana samfélagsins. Áfallateymið heyrir undir Velferðarsvið og er skipað 5 aðalmönnum og 3 varamönnum:

Aðalmenn
Anna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur
Arnar Jónsson tómstundafulltrúi
Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri
Sigríður Óladóttir prestur
Victor Örn Victorsson tamingamaður og fv. skólastjóri

Varamenn
Hildur Guðjónsdóttir aðstoðarskólastjóri Grunnskólans
Hlíf Hrólfsdóttir sérkennslu- og deildarstjóri leikskólans
Sverrir Guðmundsson lögreglumaður