25/04/2024

Skíðamót Arion banka á skírdag


Skíðamót Arion banka verður haldið á skírdag 21. apríl og hefst mótið kl. 11.00. Gengið er með hefðbundinni aðferð. Keppt verður í flokkum frá 6 ára og yngri og upp í 65 ára og eldri. Þrír fyrstu í flokkum 16 ára og yngri fá verðlaunapening fyrir sæti og aðrir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna. Mótið er öllum opið. Mótsstaður hefur ekki verið ákveðinn, en verður líklega á Steingrímsfjarðarheiði eða Þröskuldum, fylgist með á heimasíðu Skíðafélags Strandamanna http://sfstranda.blogcentral.is