20/04/2024

Sauðfjársetrið eignast hlut í Sævangi

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar var samþykktur afsalssamningur þar sem eignarhluti Strandabyggðar í Félagsheimilinu Sævangi í Tungusveit var afsalaður til Sauðfjárseturs á Ströndum að uppfylltum skilyrðum. Snúast þau m.a. um að húsið verði nýtt undir sýningarhald og menningarstarfsemi og ef starfsemi Sauðfjárseturs leggist af á næstu fimm árum renni eignarhlutinn aftur til sveitarfélagsins. Að sögn Arnars S. Jónssonar framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins er þetta mikilvægur áfangi fyrir Sauðfjársetrið og rekstur þess, en jafnframt sé gríðarleg viðhaldsvinna framundan.

Eignarhlutur Strandabyggðar í Sævangi var 66,7% eftir því sem næst er komist, en Ungmennafélagið Hvöt í Tungusveit á þriðja part í húsinu. "Nú eftir þinglýsingu á samningnum og einhverja meiri pappírsvinnu verður lagst yfir fyrirliggjandi viðhaldsverkefni í samráði við meðeigandann og þeim síðan hrundið í framkvæmd eftir því sem fjárráð leyfa," segir Arnar S. Jónsson og bætir við: "Það má segja að það sé beggja hagur að Sauðfjársetrið taki við húsinu af sveitarfélaginu, setrið þarf á sýningarhúsi að halda til framtíðar og það hefur reynst vel að hafa sýninguna og sumarstarfið í Sævangi. Þar eru miklir möguleikar á eflingu starfsins. Sveitarstjórnir sem átt hafa húsið með félögunum í Tungusveit hafa ekki farið í nauðsynlegar en kostnaðarsamar umbætur síðustu áratugi að því frátöldu að Kirkjubólshreppur lét endurnýja eldhúsinnréttinguna í upphafi aldarinnar. Viðamikil viðhaldsverkefni hafa því hlaðist upp. Sævangur er glæsilegt hús sem á skilið að því sé sýnd virðing og það höfum við hugsað okkur að gera. Það á að vera líf og fjör í gömlu félagsheimilunum í sveitum landsins."

Meðal viðhaldsverkefna sem eru fyrirliggjandi er að sögn Arnars að einangra þarf loftið yfir salnum, kaffistofu og sviði, auk þess sem skipta þurfi um járn á þakinu og setja upp þakrennur. Gluggarnir á vesturhliðinni séu ónýtir og setja þurfi tvöfalt gler í alla aðra glugga hússins. Taka þurfi orkufreka og bilanagjarna olíumiðstöð í húsinu úr umferð og setja rafmagnsofna eða kyndingu með varmadælum í sal, svið og kaffistofu auk þess sem hita þurfi upp kjallarann undir sviðinu. Tröppur þurfi verulegra múrviðgerða við og taka þurfi upp gólfið í kaffistofu og salnum og styrkja undirstöðurnar. Húsið var klætt fyrir meira en áratug, en klæðningin hefur reynst illa og er víða skemmd og ósjáleg.

"Svo er bara að forgangsraða þessu, það verður hægara sagt en gert," segir Arnar, "en við munum leita eftir stuðningi Fjárlaganefndar í verkið, en hún hefur stutt okkur dyggilega við uppbygginguna síðustu ár. Ætlunin er að reyna að fá stuðning í viðhaldsvinnu fyrir u.þ.b. 5 milljónir á næsta ári."

 

Það skein sól á Sævang í morgun – ljósm. Jón Jónsson