25/04/2024

Samið um framkvæmdir á Arnkötludalsvegi

Gengið hefur verið frá samningi um gerð nýs vegar um Arnkötludal, en fulltrúar Vegagerðarinnar skrifuðu undir samning um verkið við Ingileif Jónsson ehf. í Reykjavík sem var lægstbjóðandi. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var viðstaddur undirritunina sem fór fram á Ísafirði. Þrír undirverktakar taka þátt í verkinu. Fossvélar á Selfossi sjá um efnisvinnslu, Suðurverk um sprengingar og Borgarverk um klæðningu. Áætlað er að framkvæmdir við vegagerðina hefjist í næsta mánuði og hefst í Gautsdal. Ekki er gert ráð fyrir því að vinna neitt að ráði Strandamegin í Arnkötludalnum fyrr en á næsta ári.

Vegurinn um Arnkötludal verður 24,5 km langur og á verkinu á að vera lokið fyrir 1. september 2009. Gert er þó ráð fyrir að verkinu verði að mestu lokið fyrir lok næsta árs en að lagningu slitlags verði ekki lokið fyrr en sumarið 2009, segir í frétt frá samgönguráðuneytinu. Vegurinn er nr. 605 og liggur milli Djúpvegar nr. 61 í Steingrímsfirði og Vestfjarðavegar nr. 60 í Geiradal ekki langt frá Króksfjarðarnesi. Liggur vegurinn um Geiradal yfir í Gautsdal og þaðan yfir í Arnkötludal að þjóðvegi nr. 61 við býlið Hrófá, rétt sunnan við Hólmavík. Breidd vegarins verður 7,5 metrar.

Í ár eru 200 milljónir króna áætlaðar til framkvæmdanna og samkvæmt samgönguáætlun áranna 2007 til 2010 sem samþykkt var á Alþingi í mars síðastliðnum eru 700 milljónir áætlaðar í verkefnið á næsta ári og síðan að lokaframlög komi árið 2009. Alls bárust 9 tilboð í verkið og var tilboð Ingileifs Jónssonar ehf. það lægsta, 661,8 milljónir króna, sem er 76,5% af kostnaðaráætlun, en það hæsta 879,4 milljónir króna frá Ístaki.

Nýmæli um flýtifé var bætt inn í útboðsgögn fyrir framkvæmdina á þá leið að ef verktaki kemur bundnu slitlagi á veginn fyrir 1. september 2008 verði honum greiddar 20 milljónir króna aukalega.