18/04/2024

Rauði krossinn með fata- og flóamarkað

Bruni á Finnbogastöðum - ljósm. Jón G.G.Rauði krossinn verður með fata- og flóamarkað á Hamingjudögum til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum, en bær hans og allt innbú brann á dögunum. Um leið er rétt að minnast þess að Félag Árneshreppssbúa hefur hrundið af stað söfnun Guðmundi til stuðnings og jafnframt opnað bloggsíðu um átakið. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 1161-26-1050 og kennitala reikningsins er 451089-2509. Slóðin inn á síðuna um uppbyggingu á Finnbogastöðum er www.trekyllisvik.blog.is.  

Í fréttatilkynningu kemur fram að Rauði krossinn þarf á sjálfboðaliðum úr hópi Rauða kross fólks að halda sem hefur tíma aflögu á laugardeginum (frá 13:30-16:00) til að afgreiða í básnum á Hamingjudagahátíðinni. Áhugasamir geta haft samband við Gunnar Melsted í 451-3389 / 690-3904 eða í netfangið gmelsted@mi.is.