23/04/2024

Páskaeggjabingó á Hólmavík á laugardag

Fyrirhugað er að halda bingó í félagsheimilinu á Hólmavík næsta laugardag, 28. mars kl. 14:00. Í verðlaun verða páskaegg af margvíslegum stærðum og gerðum, en einnig margvíslegir munir sem gefnir eru af fyrirtækjum á Hólmavík. Fyrir bingóinu standa körfuboltadrengir í ungmennafélaginu Geislanum á Hólmavík sem hyggjast leggja í víking og íþróttaferð til Danmerkur með félögum sínum í Kormáki á Hvammstanga í vor, en þessi ungmennafélög keppa saman í margvíslegum hópíþróttum. Seldar verða veitingar í hléi og posi verður á staðnum.