18/04/2024

Óskað eftir endurskoðun á snjómokstursreglum

Á fundi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga þann 14. janúar 2009 var samþykkt ályktun um snjómokstur á leiðinni norður í Árneshrepp og á veginum um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar. Farið er fram á að Vegagerðin líti fremur til tíðarfars á vetrum en fyrirfram ákveðinna dagsetninga að hausti og vori og bent á að stjórnvöld séu ella að vinna í mótsögn við eigin stefnu og framtíðarsýn fyrir svæðið. Mikil óánægja hefur verið með það á Ströndum að úreltum reglum um snjómokstur norður í Árneshrepp skuli nú vera fylgt í sparnaðarskyni, ólíkt því sem verið hefur síðustu ár, og er eindregin krafa að þeim verði breytt. Ályktun Fjórðungssambandsins er svohljóðandi:

"Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga óskar eftir endurskoðun á reglum um snjómokstur Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði og vegarins norður í Árneshrepp.  Horfa þarf til tíðarfars á vetrum fremur en dagsetningar að hausti og vori, því oft þarf lítið til að halda opnum þessum leiðum lengur en snjómokstursreglur segja til um.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga vill benda á að Vestfirðir eru á margvíslegan hátt ein stjórnsýslueining af stjórnvalda hálfu og hefur sameiginlegum málaflokkum fjórðungsins verið að fjölga.  Einnig má nefna að opinberar þjónustu- og rannsóknarstofnanir þurfa að senda starfsmenn á milli svæða reglulega árið um kring auk þess sem fyrirtæki eru að reyna að bjóða þjónustu á fleiri en einu svæði. Þeir sem leið eiga milli suður- og norðursvæðis Vestfjarða þurfa í dag að aka um 1200 kílómetra, fram og til baka, til að geta sótt og sinnt þjónustu milli þessara svæða. Það er því ekki óeðlilegt að óskað sé eftir að reglubundinn snjómokstur sé tryggður eins og kostur er, sem og nauðsynlegt fjármagn. Að öðrum kosti eru stjórnvöld komin í mótsögn við eigin stefnu og framtíðarsýn fyrir svæðið. Svipað á við um Árneshrepp, en íbúar hreppsins geta ekki nýtt sér landsamgöngur stóran hluta ársins."