29/03/2024

Námskeið um markaðssetningu

Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Atvest standa nú fyrir hagnýtu námskeiði fyrir aðila í ferðaþjónustu og aðra sem vilja finna góðar leiðir til að koma fyrirtæki sínu á framfæri. Námskeiðið verður þriðjudaginn 26. maí og er kennt á Ísafirði, en einnig í gegnum fjarfundarbúnað á Hólmavík, Patreksfjörð og Reykhóla. Stendur námskeiðið frá kl 17.00-21.00. Áhersla er lögð á heimasíður, bæklinga og Facebook. Farið verður í grunnatriði í markaðssetningu og hvernig best er að nýta þessa miðla. Tekin verða dæmi um hvað er vel gert og hvað er síður að virka og þátttakendur aðstoðaðir við að greina sínar áherslur í markaðsmálum.

Námskeiðið hentar jafnt þeim sem eru byrjendur og þeim sem eru lengra komnir í markaðssetningu síns
fyrirtækis. Kennari er Jón Páll Hreinsson markaðssérfræðingur og verð er kr. 5.000.- Skráning er á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða – www.frmst.is.