29/03/2024

Myndir frá opnun Arnkötludals

580-arnkatl14

Fjölmenni var við formlega opnun vegarins um Arnkötludal í dag, heimamenn sitt hvoru megin heiðarinnar og gestir víða að. Kristján Möller samgönguráðherra mætti á svæðið og frammi á dalnum var klippt á borða og afhjúpaður skjöldur til minnis um að nú væri bundið slitlag milli norðanverðra Vestfjarða og Reykjavíkur. Hátíðinni var svo framhaldið í Félagsheimilinu á Hólmavík og enginn kreppubragur á veitingum sem Samgönguráðuneytið og Vegagerðin buðu gestum upp á. Allmargar ræður voru haldnar og almennur fögnuður sveif yfir vötnum á svæðinu yfir þessari miklu samgöngubót. Myndir segja meira en mörg orð.

580-arnkatl8580-arnkatl9 580-arnkatl7 580-arnkatl6 580-arnkatl5 580-arnkatl4 580-arnkatl3 580-arnkatl2 580-arnkatl14 580-arnkatl13 580-arnkatl12 580-arnkatl11 580-arnkatl10580-arnkatl22 580-arnkatl21 580-arnkatl20 580-arnkatl19 580-arnkatl18 580-arnkatl17 580-arnkatl16 580-arnkatl15

580-arnkatl1

Við formlega opnun vegarins um Arnkötludal – ljósm. Jón Jónsson