19/04/2024

Minkur í Árneshreppi

300-mink-djup2Starfsmenn Sögusmiðjunnar á Kirkjubóli hafa undanfarna mánuði safnað saman aragrúa upplýsinga um mannlíf á Ströndum og sögu svæðisins úr margvíslegum heimildum. Margt sem skemmtilegt er að lesa er þar innan um eins og til dæmis eftirfarandi blaðagrein eftir Regínu frá Gjögri í Morgunblaðinu þann 12. ágúst 1958, þar sem segir frá fyrsta minknum sem veiddist í Árneshreppi.

Fyrsta minknum banað í Árneshreppi á Ströndum

Fyrir nokkru fóru þær Ester Magnúsdóttir, Djúpavík, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Reykjafirði og Herdís Árnadóttir s. st., ríðandi norður í Trékyllisvík. Er konurnar voru komnar út að svokölluðu Vallnesi, sem tilheyrir Reykjafjarðarlandi, sáu þær dýr í fjörunni sem þær báru ekki kennsl á.

Fóru þær af baki og eltust við dýrið, sem reyndist vera minkur. Flúði minkurinn undir stein. Konurnar tóku þá það ráð, að tvær fóru heim í Reykjafjörð, að sækja Kjartan Guðmundsson bónda til að ráða niðurlögum hins skaðlega dýrs.

Komu Kjartan og konurnar eftir um það bil klukkustund og var Kjartan með byssu og hund með sér. Byrjaði þá orrustan og voru þau öll í vígahug. Konurnar tóku rekaviðarspýtur og hugðust lyfta steininum, sem minkurinn lá undir. Eftir nokkurn tíma skaust minkurinn undan steininum og skaut Kjartan hann samstundis. Þetta er í fyrsta skipti sem minkur sést hér í Árneshreppi.