29/03/2024

Menningarráð úthlutar styrkjum á Bíldudal

Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fer fram í Skrímslasetrinu á Bíldudal á morgun, laugardaginn 15. maí og hefst athöfnin kl. 15:00. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 34 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 75 þúsund til 1 milljón, samtals að upphæð 15 milljónir. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 78 og var samtals beðið um rúmar 55 milljónir í verkefnastyrki, en heildarsamtala fjárhagsáætlana var þrisvar sinnum hærri.

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna í fjölbreyttum listgreinum og var áhersla að þessu sinni lögð á að styrkja verkefni sem fólu í sér nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra tengd listum og menningu, samvinnu og  menningartengda ferðaþjónustu. Vestfirskt menningarlíf lætur engan bilbug á sér finna og sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi.

Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum. Heildarlisti um styrkt verkefni verður síðan birtur á vef Menningarráðs Vestfjarða og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Bíldudal. Menningarráðið mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki í haust.

Athöfnin er öllum opin og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á veitingar.