19/04/2024

Menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum

Ljósm. Claus SterneckNú er vika til stefnu til að sækja um styrki til Menningarráðs Vestfjarða
við seinni úthlutun á árinu 2009 og eru þegar komnar nokkrar ágætar umsóknir í
hús. Umsóknarfrestur er til 30. október og sækja þarf um styrki til afmarkaðra
menningarverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir eru bornar saman á samkeppnisgrundvelli,
þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu
á að styrkur fáist. Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna
áhersluþætti við hverja úthlutun fram að þessu og við seinni úthlutun 2009
verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar
áherslur:

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
b. Verkefni
sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna,
byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
d.
Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og
menningarstarfi á Vestfjörðum.

Athygli er vakin á því að styrkir
einskorðast ekki við þessar áherslur og umsóknir um annars
konar menningarverkefni eiga einnig fullt erindi. Rafrænt umsóknarblað,
leiðbeiningar og úthlutunarreglur er að finna á vef Menningarráðsins – www.vestfirskmenning.is. Í
úthlutunarreglum er skilgreint hvernig verkefni Menningarráðið styður og einnig
má skoða eldri úthlutanir til að fá hugmynd um það. Styrkir til verkefna hafa
verið á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón. Allar nánari upplýsingar gefur
menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.