19/04/2024

Lýðveldið við fjörðinn

Dagana 1. og 2. ágúst 2009 verður haldin myndlistarsýning í Ingólfsfirði á Ströndum undir yfirskriftinni Lýðveldið við fjörðinn og eru allir velkomnir. Sýningin er til húsa í Kvennabragganum á Eyri í Ingólfsfirði og verður opnuð kl. 14 laugardaginn 1. ágúst og verður opin frá 14-19 báða dagana. Sýningin er hluti af þríþættu sýningarverkefni sem hverfist um hugmyndir um íslenska lýðveldið í tengslum við menningarsögu og náttúrulegt umhverfi sýningarstaðanna. Fyrsta sýningin var haldin í vor í heyhlöðu við Mývatn og nefndist Lýðveldið við vatnið. Sú þriðja verður opnuð í húsnæði gömlu ullarverksmiðjunnar við Varmá í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ.

Verkefnið er sjálfstætt framhald af samsýningu hópsins Lýðveldið Ísland sem haldin var í Þrúðvangi, Álafosskvosinni árið 2004 og var tileinkuð 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Átta listakonur eiga verk á sýningunni Lýðveldið við fjörðinn:

Anna Jóa
Bryndís Jónsdóttir
Guðbjörg Lind Jónsdóttir
Hildur Margrétardóttir
Hlíf Ásgrímsdóttir
Kristín Geirsdóttir
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
Ólöf Oddgeirsdóttir

Sýningarverkefnið hefur hlotið styrk frá Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna.