28/03/2024

Leyndardómar fjörunnar, þjóðtrú, ótti og óhugnaður

leyndardomar

Laugardaginn 10. september kl. 20:00 verður árleg þjóðtrúarkvöldvaka haldin á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Dagrún Ósk Jónsdóttir sér um kvöldvökuna og Ester Sigfúsdóttir töfrar fram yfirnáttúrulegt kaffihlaðborð. Að þessu sinni eru á dagskrá þjóðtrúarkvöldvökunnar skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúruna, ísbirni, seli, fjöruna, þjóðtrú og þjóðsögur. Auk skemmtilestra sem einkenna þessa kvöldvöku verður boðið upp á viðeigandi tónlistaratriði sem Arnar Snæberg Jónsson sér um og aðgangseyrir með dulmögnuðu kaffihlaðborði inniföldu er 1500 kr. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Eftirfarandi erindi verða flutt:

Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur: Ógnvaldur í undirdjúpunum: Hryllileg samskipti sela og manna.

Kristinn Schram, þjóðfræðingur: Líf og dauði í flæðarmálinu: þjóðfræði rekafjörunnar.

Jón Jónsson, þjóðfræðingur: Ísbirnir éta ekki óléttar konur!