18/04/2024

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn verður í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 25. maí n.k. verður í fyrsta sinn veitt viðurkenning undir heitinu „Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“. Viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Um getur verið að ræða einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag.

Byggðastofnun óskar eftir ábendingum um handhafa þessarar viðurkenningar. Að ábendingum fengnum mun dómnefnd velja úr. Eftirfarandi þætti má hafa í huga við valið:

Hvort viðkomandi hafi:
# gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
# aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
# orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
# dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma 455-5400 eða netfang, sigga@byggdastofnun.is. Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út mánudaginn 16. maí 2011.