28/03/2024

Lagasamkeppni fyrir Hamingjudaga


Enn á ný hefur verið ákveðið að efna til hamingjuríkrar og spennandi lagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík. Skilafrestur á lagi í keppnina er til föstudagsins 4. maí, en keppnin sjálf verður haldin kl. 20:00 laugardagskvöldið 12. maí. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður. Sigurvegarinn í keppninni fær peningaverðlaun að upphæð kr. 50.000, en um leið skuldbinda menn sig til að koma sigurlaginu í útgáfu sem hæfir til útvarpsspilunar. Ásdís Jónsdóttir á Hólmavík hefur sigrað keppnina þrjú síðustu ár sem hún hefur verið haldin.

Skila þarf lögum á geisladiski í síðasta lagi föstudaginn 4. maí, merkt Hamingjudagar á Hólmavík – Lagasamkeppni 2011, Höfðagata 3, 510 Hólmavík. Úrslitakeppnin fer svo fram í félagsheimilinu á Hólmavík og munu áhorfendur eins og venjulega velja sigurlagið í kosningu.