19/04/2024

Kvennafrídegi fagnað í Strandabyggð

350-kvennadagur01Í frétt á vef sveitarfélagsins Strandabyggðar kemur fram hvatning til allra kvenna sem starfa hjá sveitarfélaginu og annarra kvenna á Ströndum til að fagna kvennafrídeginum. Eru þær hvattar til að ganga út frá störfum sínum mánudaginn 25. október kl. 14:25 og fjölmenna í Upplýsingamiðstöðina á Hólmavík. Í ár verður haldið upp á kvennafrídaginn í 35. sinn, en fyrsti kvennafrídagurinn 1975 markar djúp spor í baráttusögu íslenskra kvenna. Talið er að þann dag hafi alls 90% kvenna lagt niður störf eða nánast helmingur þjóðarinnar, til þess að krefjast sömu réttinda og launa og karlar nutu á vinnumarkaði.

Kvennafrídagurinn í ár er helgaður baráttu kvenna gegn kynbundnu ofbeldi. Kynbundið ofbeldi er sprottið af sama meiði og annað misrétti sem konur standa frammi. Það hefur að hluta til náð að brjótast upp á yfirborðið sem viðurkenndur vandi. Nægir í því sambandi að nefna misréttið sem viðgengst á vinnumarkaðnum og birtist í kynbundnum launamun og almennt minni framamöguleikum.

www.strandabyggd.is