28/03/2024

Kristján vann lagasamkeppnina

Á grillveislunni sem haldin var eftir hreinsunarátak Hólmvíkinga í gær tilkynnti Bjarni Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri fyrirhugaðra Hamingjudaga á Hólmavík hver hefði unnið lagasamkeppni sem haldin var í tengslum við hátíðina. Leitað var að lagi sem gæti verið kynningarlag hátíðarinnar og bárust alls níu lög í keppnina eftir jafnmarga höfunda. Fimm heimamenn sendu inn lag og það er gaman að segja frá því að einn þeirra, Kristján Sigurðsson aðstoðarskólastjóri á Hólmavík fór með sigur af hólmi með lagi sínu Hamingjudagar á Hólmavík við texta Ásgerðar Ingimarsdóttur, en það vill einmitt svo skemmtilega til að Ásgerður er móðir Victors Arnar Victorssonar skólastjóra á Hólmavík. Kristján flutti lagið í grillveislunni við mikinn fögnuð og góðar undirtektir gesta.

Kristján hlaut í verðlaun kr. 25.000 og næst á dagskránni hjá honum er væntanlega að koma laginu í búning sem hentar til spilunar í útvarpi. Það er einnig líklegt að mikið verði að gera hjá þeim lagahöfundum sem ekki höfðu erindi sem erfiði í keppninni því Bjarni skýrði frá því að hann myndi leggja það fyrir menningarmálanefnd að gefinn yrði út diskur með öllum lögunum sem bárust í keppnina.

strandir.saudfjarsetur.is óska Kristjáni og Ásgerði (og Victori með móður sína) til hamingju með lagið, textann og sigurinn í keppninni.

Ljósm. – Arnar S. Jónsson