20/04/2024

Kræklingaeldi í Steingrímsfirði á súpufundi í dag

Halldór Logi Friðgeirsson frá útgerðarfélaginu ST-2 ehf á Drangsnesi mun fjalla um starfsemi fyrirtækisins með sérstakri áherslu á tilraunaeldið á kræklingi í Steingrímsfirði á súpufundi Þróunarsetursins á Hólmavík í hádeginu í dag. Þetta er sjötti súpufundurinn í vetur sem eru haldnir í hádeginu á Café Riis alla fimmtudaga í vetur. Mjög vel er látið af fundunum og þátttaka á þeim hefur verið framar öllum vonum. Tilgangur með fundunum er að auka vitneskju heimamanna um fjölbreytt atvinnulíf svæðisins og ekki síður að efla skilning á milli atvinnugreina með því að leiða saman frumatvinnugreinarnar og nýsköpun í atvinnulífi.

Stefnt er að því að opna atvinnu- og menningarmálasýningu í Félagsheimilinu á Hólmavík á vordögum sem verður uppi allt sumarið og mun undirstrika öflugt, fjölbreytt og fjörugt atvinnu- og mannlíf á Ströndum. Súpufundirnir hefjast klukkan 12:00 og standa til kl. 13:00. Það eru allir hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta.