19/04/2024

Kræklingaeldi á súpufundi næsta fimmtudag

Halldór Logi FriðgeirssonHalldór Logi Friðgeirsson frá útgerðarfélaginu ST-2 ehf á Drangsnesi mun fjalla um starfsemi fyrirtækisins með sérstakri áherslu á tilraunaeldið á kræklingi í Steingrímsfirði á súpufundi Þróunarsetursins á Hólmavík næstkomandi fimmtudag. Þetta verður sjötti súpufundurinn í vetur sem eru haldnir í hádeginu á Café Riis alla fimmtudaga í vetur. Mjög vel er látið af fundunum og þátttaka á þeim hefur verið framar öllum vonum. Tilgangur með fundunum er að auka vitneskju heimamanna um fjölbreytt atvinnulíf svæðisins og ekki síður að efla skilning á milli atvinnugreina með því að leiða saman frumatvinnugreinarnar og nýsköpun í atvinnulífi.


Stefnt er að því að opna atvinnu- og menningarmálasýningu í
Félagsheimilinu á Hólmavík á vordögum sem verður uppi allt sumarið og
mun undirstrika öflugt og fjörugt atvinnu- og mannlíf á Ströndum.
Súpufundirnir hefjast klukkan 12:00 og standa til kl. 13:00. Það eru
allir hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta.