25/04/2024

Kosningu á Strandamanni ársins 2009 að ljúka

Nú er seinni hluta kosningar um Strandamann ársins 2009 að ljúka, en í seinni umferð er kosið á milli þeirra þriggja sem flestar tilnefningar fengu. Þeir sem koma til greina sem Strandamenn ársins 2009 eru Áhöfnin á Grímsey ST-2 á Drangsnesi, Ingibjörg Valgeirsdóttir frá Árnesi í Trékyllisvík, og Sigurður Atlason á Hólmavík. Hægt er að kjósa með því að smella á þennan tengil eða hér vinstra megin á síðunni og verður lokað fyrir kosninguna á hádegi mánudaginn 25. janúar.