20/04/2024

Konukvöld í Bjarkalundi

Nú er komið að því að Kvenfélagið KATLA muni standa fyrir konukvöldi í Bjarkalundi og verður það í kvöld, föstudaginn 5. nóvember kl. 20:30.  Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, en þema kvöldsins er slæður og hugmyndin er að allar konur mæti með slíkar.  Veislustjóri  verður Sigríður Klingenberg lífskúnster og spámiðill og mun hún spá fyrir þeim sem vilja í lokin. Anna Gunnarsdóttir stílisti og snyrtifræðingur kíkir í fataskápinn og ráðleggur okkur hvernig við getum gert mikið úr litlu og kennir okkur að binda slæður.

Ein heppin verður lituð,klippt og förðuð.  Elína Hrund yngri, eigandi hársnyrtistofunnar Spes-Hár mun sjá um klippingu og litun með Bed Head vörum frá TIGI. Anna Gunnarsdóttir snyrtifræðingur farðar með vörum frá Forever Living. RYK design (Kristín Kristjánsdóttir)  mun kynna sínar vörur, falleg íslensk fatahönnun.  Soffía Húnfjörð frá Undirföt.is mun kynna sínar vörur sem koma frá Kanada, Bretlandi, Póllandi og Lettlandi og eru úr hágæðaefnum.

Léttar veitingar, miðaverð aðeins kr. 2.900.- Strandakonur boðnar sérstaklega velkomnar á viðburðinn.