24/04/2024

Kaffihúsafundur ungs fólks í Strandabyggð

645-alltahreinu2

Frá því er sagt á heimasíðu sveitarfélagsins Strandabyggðar – www.strandabyggd.is – að fimmtudaginn 20. febrúar verður kaffihúsafundur fyrir ungt fólk í Strandabyggð og nágrenni. Svipaður fundur var haldinn í Hnyðju í október síðastliðnum og ríkti mikil ánægja með hann. Þar var unnið með hugmyndina um ungmennahús, hvers vegna það væri mikilvægt og hvernig við vildum hafa það. Í þetta skiptið er ætlunin að hittast í Félagsheimilinu kl. 20:00 þar sem Ungmennaráðið kynnir áform um opnun ungmennahúss, en til stendur að opna ungmennahús í félagsheimilinu í tilraunaskyni. Í framhaldinu ætlar Viktoría Rán hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða að kynna gerð viðskiptaáætlana fyrir unga fólkinu og vinna út frá hugmyndinni um að opna kaffihús í ungmennahúsinu. Að þessu loknu verður opið hús fram eftir kvöldi. Allt ungt fólk á aldrinum 15-25 ára er sérstaklega hvatt til að mæta og leggja þannig grunninn að uppbyggingu ungmennahúss í Strandabyggð í Félagsheimilinu fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 20:00.