23/04/2024

Jólaspjall Þjóðfræðistofu 19. desember

Laugardaginn 19. desember , kl. 13:00, mun Þjóðfræðistofa blása til þjóðfræðiþings, útgáfuhófs og menningardagskrár. Auk þess að miðla af rannsóknum verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar útgáfur. Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum. Jólaspjallið verður haldið í Bragganum á Hólmavík en Café Riis býður upp á létt jólahlaðborð á vægu verði.

Á dagskránni eru eftirfarandi atriði:

•    Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu, segir frá starfseminni á árinu.
•    Jón Þór Pétursson þjóðfræðingur, segir frá mastersverkefni sínu og rannsóknarverkefni Þjóðfræðistofu um íslenska matarhefð.
•    Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri á Þjóðfræðistofu, segir frá samtímasöfnun á leikjum íslenskra barna.
•    Sigurður Atlason framkvæmdastjóri Strandagaldurs, kynnir samstarfsverkefni um jólaendurminningar Strandamanna.
•    Heimildamyndin Leitin að Gísla Suurinpojka.
•    Jón Jónsson menningarfulltrúi og þjóðfræðingur, flytur jólahugvekju.
•    Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur, segir frá nýútkominni bók sinni Eve Online sem gefin er út af Þjóðfræðistofu.
•    Söngflokkurinn Fúmm fúmm fúmm flytur jólatónlist.
•    Höfundar lesa upp úr nýjum bókum
    Vilborg Davíðsdóttir – Auður
    Eiríkur Örn Nordahl – Gæska

Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri hjá Þjóðfræðistofu sagði nýlega frá Jólaspjallinu í viðtali á RÚV, auk þess sem rætt var um söfnun á jólaminningum Strandamanna á ölllum aldri. Viðtalið má heyra hér.

Vefsíða Þjóðfræðistofu er á slóðinni www.icef.is.