25/04/2024

Jólaföndur Grunnskólans á Hólmavík

580-jolafondur5

Foreldrafélag grunnskólans á Hólmavík ætlar að bjóða upp á jólaföndur miðvikudaginn 9. desember kl. 17-19 í félagsheimilinu á Hólmavík. Á staðnum verður til sölu gegn vægu gjaldi samlokur, heitt súkkulaði og smákökur. Inga Sigurðar verður einnig með föndurdót til sölu og liti til afnota. Heyrst hefur að jólasveinn ætli að kíkja á föndrið með glaðning fyrir börnin Allir velkomnir ungir sem aldnir. Enginn posi á staðnum.