25/04/2024

Hver er Strandamaður ársins 2008?

Þótt nokkuð sé komið fram á nýja árið, hefur vefurinn strandir.saudfjarsetur.is ákveðið að standa fyrir kosningu á Strandamanni ársins fimmta árið í röð. Nú á að velja Strandamann ársins 2008 og gefst tækifæri til að skila inn tilnefningu fram að klukkan 12:00 á hádegi sunnudaginn 8. febrúar. Þeir sem vilja tilnefna Strandamann ársins 2008 skulu fylla út formið sem er að finna undir þessum tengli þar sem þeir tilgreina hver fær þeirra atkvæði og segja hvers vegna. Koma þarf fram í póstinum fullt nafn sendanda til að atkvæðið sé gilt. Einnig er hægt að velja með því að ýta á tengilinn í valstikunni hér vinstra megin.

Allir Strandamenn nær og fjær eru hvattir til að taka þátt, en í síðari umferð verður valið á milli þeirra þriggja sem flestar tilnefningar fá.

Strandamaður ársins hefur verið valinn fjórum sinnum á vefnum strandir.saudfjarsetur.is, en fyrsta árið var valið unnið í samvinnu við blaðið Fréttirnar til fólksins og árið 2008 í samvinnu við Gagnveg. Þeir sem hafa verið valdir eru Sverrir Guðbrandsson eldri á Hólmavík árið 2004, Guðbrandur Einarsson frá Broddanesi var Strandamaður ársins 2005, Sandra Dögg Guðmundsdóttir á Drangsnesi var kjörin árið 2006 og hjónin Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir á Drangsnesi unnu árið 2007.