19/04/2024

Hvað veist þú um Vestfirði?

photo 1

Spurningabókin Hvað veist þú um Vestfirði kom út þann 12. desember 2013. Hvað veist þú um Vestfirði er skemmtileg og fræðandi spurningabók fyrir alla fjölskylduna, þar sem finna má fjölda fjölbreyttra spurninga tengdum Vestfjörðum og Vestfirðingum. Eyþór Jóvinsson verslunarmaður í Vestfirsku versluninni samdi spurningarnar. Þetta er þriðja bók Eyþórs Jóvinssonar, en að baki á hann tvær ljósmyndabækur síðastliðin tvö ár. Hugmyndin að spurningabókinni kviknaði aðeins fyrir rétt um mánuði síðan, daginn eftir að Ísafjarðarbær keppti í Útsvari með eftirtektarverðum árangri. Því er óhætt að segja að það hafi verið hafðar hraðar hendur við að semja spurningar, setja upp og prenta. Aðeins 30 dagar frá hugmynd að útgáfu.

Bókinni er fyrst og fremst ætlað að skemmta Vestfirðinum og öðrum eftir jólasteiknni, samhliða því að fræða landsmenn um Vestfirði. Spurningarnar spanna allt frá Gísla Súrsyn til Mugisons, frá landnámi Hrafna-Flóka og til sveitarstjórnakosninganna 2014. Fortíð, nútíð og framtíð. Bókin er fáanleg í Vestfirzku verzluninni á Ísafirði og er væntanleg í verslanir um allt land.

photo 2