20/04/2024

Hulunni svipt af flytjendum og lagaheitum

 Keppnin um hvaða lag verður einkennislag Hamingjudaga árið 2011 fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík kl. 20:00 í kvöld. Nú liggur ljóst fyrir hverjir eru flytjendur og hvað lögin í lagasamkeppni Hamingjudaga heita. Lögin eru sex talsins, en áhorfendur í sal fá að kjósa á milli laganna. Aðgangseyrir er aðeins kr. 1.000.- fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Atkvæðaseðill fylgir hverjum keyptum miða. Hér fyrir neðan gefur að líta hverjir flytja lögin í kvöld, hvað þau heita og hver dulnefni höfunda eru:

Heiti lags

Flytjandi

Höfundur

Koss á kinn

Arnar Snæberg Jónsson

Fyrsti apríl

Hamingjan byrjar hér

Bjarki Einarsson og Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir

Cat Brothers

Lífshamingjan

Arna Þorsteins

Fjóla

Vornótt á Ströndum

Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Elín Ingimundardóttir

Zombie

Hamingjan

Svanhildur Garðarsdóttir og Dagný Hermannsdóttir

Mikki og Mína

Viltu kannski kyssa mig?

Ólafur Sveinn Jóhannesson

Lappi og Limbó