25/04/2024

Hugmyndasamkeppni um nafn á krossbraut

Félag sem hefur unnið að því að koma upp braut fyrir krossara (mótorhjól) við Hólmavík, við endann á flugvellinum á Kálfanesskeiði, leitar nú til lesenda strandir.saudfjarsetur.is eftir hugmyndum um nafn á brautina. Brautin hefur verið afar vinsæl í sumar og þegar vel viðrar er þar jafnan fjöldi Hólmvíkinga á hjólunum sínum. Frestur til að skila inn tillögum er fram á næsta sunnudag, þann 26. ágúst, en tillögurnar á að senda á netfangið newtonmani@simnet.is.